Heilsuleikur
Latabæjar

Gerum þetta skemmtilegt
og heilsusamlegt

 10.júní - 1. september

Hvernig virkar leikurinn

1. Kauptu ávexti og grænmeti merkt Latabæ

→ Fáanlegt í Bónus, Hagkaup eða Olís

2. Safnaðu orkustigum af umbúðum

→ Bland í poka: 10 orkustig

→ Íþróttabakki: 20 orkustig

→ Afmæliskassi: 30 orkustig

3. Skilaðu orkustigum í verslun

→ Fyrstu 100 orkustigin = Þú færð plakat

→ Fyrir hver 100 orkustig eftir það fæst límmiði

→ Markmið: 1.000 orkustig = plakat + 9 límmiðar

4. Lokaverðlaun afhent 29. ágúst – 1. september

→ Tryggðu að plakatið sé útfyllt með 9 límmiðum

→ Komdu með það á afhendingarstað

→ Fáðu lokaverðlaunin!

Afhendingarstaður og lokaverðlaun tilkynnt 28. ágúst!

Safna orkustigum

3 leiðir til að safna

Athugið umbúðir innihalda orkustig

Bland í poka

Orkustigin leynast utan á pokanum.

10 orkustig

Íþróttabakki

Orkustigin leynast undir ávöxtunum eða grænmetinu.

20 orkustig

Afmælisbox

Orkustigin leynast leynast undir grænmetinu.

30 orkustig

Safnar þangað til þú nærð 100 orkustigum

Fæst á eftirfarandi stöðum

Þegar 100 orkustigum er náð

  1. Ferð í Hagkaup, Bónus eða Olís.
  2. Stigin eru stimpluð og plakatið er afhent.
  3. Safnar svo aftur 100 orkustigum og endurtekur leikinn.

Miðar stimplaðir

Fyrir hver 100 orkustig
færðu einn límmiða

100 orkustig = 1 límmiði
900 orkustig = 9 límmiðar
Markmið 1.000 orkustig = Plakat + 9 límmiðar

Þegar búið er að safna öllum 9 límmiðunum og líma á plakatið er plakatinu skilað inn á sölustaði

3 dögum áður en leikurinn endar færðu verðlaun
Gangi ykkur vel!

Hvað er langur tími eftir?

Athugið að fyrsta tímabil er til 1. september eða 83 dagar.
Eftir að því tímabili lýkur er talið aftur niður.

Hleður...

Renndu við á næstu Olís
stöð og taktu þátt.

Átak

Frá upphafi hefur markmið Latabæjar verið að hvetja börn til að tileinka sér hollan lífsstíl og gera heilbrigðan kost að aðlaðandi vali. Í tilefni 30 ára afmæli Latabæjar, höfum við sett af stað heilsuátakið Íþróttanammi, sem miðar að því að auka neyslu barna á grænmeti og ávöxtum.

Átakið er unnið í samstarfi við Embætti landlæknis og Heilbrigðisráðuneytið sem hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að gera hollan valkost að þeim auðveldasta fyrir börn og fjölskyldur.

Hluti af ágóða verkefnisins rennur í Styrktarsjóð Latabæjar, sem hefur það að markmiði að efla hreyfingu og heilbrigði barna.

Verndari átaksins

Björn Skúlason
Heilsukokkur

Gróðurhús

Í völdum verslunum Bónus og Hagkaups er skemmtilegt gróðurhús þar sem krakkar geta tekið þátt í leiknum!

Þar geta krakkar:

  • Valið úr hollum ávöxtum og grænmeti
  • Sett í lítinn poka og „verslað“ sjálfir
  • Fyrir hvern poka safnar þú 10 orkustigum og kemst nær næsta límmiða! 

Veldu hollt, hafðu gaman og safnaðu stigum til að ná stóru verðlaununum!

  • Smárinn
  • Kringlan
  • Smárinn
  • Kauptún
  • Holtagarðar
  • Norðurtorg

Veljum grænmeti, ávexti og ber oft á dag

Ráðlagt er að borða grænmeti, ávexti og ber, helst í öllum máltíðum og sem millibita. 

Mælt er með því að borða að minnsta kosti fimm skammta á dag og helst meira (allt að átta skömmtum). Að minnsta kosti helmingurinn ætti að vera grænmeti. Best er að velja ólíkar tegundir af grænmeti og ávöxtum til að tryggja fjölbreytni.

Spennandi verðlaun í boði

Verðlaunin verða tilkynnt á næstu vikum og afhent á síðustu þremur dögunum fyrir lok leiksins.

Samstarf

Átakið er unnið í samstarfi með eftirfarandi aðilum.

    „Ábyrgðin á matvælaframleiðendur og smásala á vöruúrval í verslunum er mikið. Við vildum því bregðast hratt við nýjum ráðleggingum í mataræði og bjóða barnafjölskyldum upp á hollar vörur á skemmtilegan hátt,“

    Pétur Smári Sigurgeirsson

    Sölustjóri Banana

    „Hagkaup hefur lagt mikla áherslu á að bjóða upp á heilsusamlega kosti fyrir viðskiptavini sína og boðið upp á mjög gott úrval af hollum og ferskum matvælum. Sala á sérmerktri hollustuvöru fyrir börn undir merkjum Latabæjar er kærkomin viðbót“

    Eva Laufey Kjaran

    Markaðsstjóri Hagkaups

    Sem þjónustustöð fyrir fólk á ferðinni finnum við sterkt fyrir þeirri ábyrgð að bjóða upp á góðan og hollan kost fyrir viðskiptavini okkar. Þess vegna er það okkur mikilvægt að taka þátt í þessu verkefni með Latabæ, Hagkaup, Bónus og Bönunum þar sem við hjálpumst að við að gera grænmeti og ávexti að aðgengilegri og spennandi valkosti fyrir fjölskyldur um allt land. Þetta er gott skref í átt að bættri lýðheilsu – á ferðinni og heima.

    Silja Birgisdóttir

    Markaðsstjóri Olís

    „Grænmeti, ávextir, og fleiri tegundir matvæla verða í sérmerktum umbúðum og hugað er sérstaklega að því að gera íþróttanammið að meira spennandi kosti en sælgæti og aðra óhollustu. Umbúðirnar eru handhægar og innihalda skammta sem henta börnum vel,“